Formáli
Lesari; þessi bók er ekki gefin út til þess að segja oss frá því að í
heimi þessum sé synd, böl og bágindi. Það er oss öllum fullkunnugt.
Þessi bók er ekki gefin út í því skyni að segja oss frá því, að ósætt-
anleg barátta eigi sér stað milli myrkurs og Ijóss, syndar og réttlætis.
sannleika og lýgi, lífs og dauða. Inst í meðvitund vorri vitum vér
það alt, og vitum jafnframt að vér erum þátt-takendur og málsaðilar
í deihmni.
En vér erum öll þannig gerð, að oss fýsir stundum að vita og
fræðast meira um hina miklu deilu. Hvernig hófst deilan? eða var
hún til frá upphafi? Hver eru þau atriði, sem mynda þessa ægilegu
deilu? Hver er afstaða mín gagnvart henni? Hvaða ábyrgð ber eg
í sambandi við hana? Eg er hér í þessum heimi, án þess að það sé
fyrir mínar eigin óskir. Táknar það böl eða blessun mér til handa?
Hver eru hin miklu atriði, sem um er að ræða? Hversu lengi heldur
þessi deila áfram? Hvernig skyldi hún enda?
Og spurningin kemur enn þá nær: Hvernig er hægt að enda
baráttuna í mínu eigin hjarta, baráttuna á milli eigingirninnar, sem
ávalt leitar inn á við og kærleikans, sem sækir út á við; hvernig er
hægt að binda enda á þá baráttu með sigri og fyrir fult og alt? Hvað
segir ritn-ingin? Hvað kennir Guð oss um þessa spurningu, sem er
eilíf og þýðingarmikil fyrir hverja emustu sál?
Spurningar svipaðar þessari mæta oss á allar hliðar. Þær rísa upp
stöðugt frá djúpi vors eigin hjarta, og þær krefjast svars.
Það er víst að Guð, sem skapaði í oss þrána til hins betra, löng-
unina til sannleikans, synjar oss ekki um þekk-ingu á því, sem öllu
er nauðsynlegra. Því “herrann Drottinn gjörir ekkert án þess að hann
hafi opinberað þjónum sínum spámönnunum, ráðsályktun sína”.
[10]
Það er tilgangur þessarar bókar, lesari góður, að hjálpa hinni þrá-
sjúku sál til þess að leysa allar þessar gátur; bókin er rituð af höfundi,
sem hefir fundið og reynt að Guð er góður, og lært í samfélaginu við
Drottinn og lestri hans heilaga orðs, að leyndardómur Guðs fylgir
þeim, sem hann óttast, og að hann mun sýna þeim sátt-mála sinn.
ii