280
Deilan mikla
ekki fyrir neinni breytingu. Þegar þeir koma upp úr gröfinni, halda
þeir áfram að hugsa nákvæmlega eins og áður. Þeir eru knúðir af
hinni sömu sigurfýsn, sem stjórnaði þeim þegar þeir féllu.
Djöfullinn heldur ráðstefnu við engla sína og síðan við konunga
og sigurvegara og volduga menn. Þeir líta á styrkleikann og fjöldann
sín megin og lýsa því yfir að herinn í borginni sé fámennur í saman-
burði við her þeirra og að þeir geti unnið sigur. Þeir bera saman ráð
sín um það, hvernig þeir geti náð undir sig auðæfum og dýrð hinnar
nýju Jerusalem. Allir byrja tafarlaust að búa sig til orustu. Æfðir iðn-
aðarmenn búa til stríðsáhöld; hermálastjórar sem frægð hafa hlotið
fyrir sigurvinn-ingar leiða hersveitir hinna herskáu manna í deildum
og smáfylkingum.
Loksins er gefin skipun um það að fara af stað og hinn ótölu-
legi fjöldi fer af stað; er það svo stór her að slíkum hefir enginn
jarðneskur sigurvegari safnað; her þessi er meiri en svo, að allar
hinar sameinuðu hersveitir allra alda, síðan stríð hófst á jörðinni geti
jafnast við það. Djöfullinn, sem er hinn voldugasti stríðsmannanna,
fer í broddi fylkingar og englar hans á eftir honum og sam-eina sig
til hins síðasta bardaga. Konungar og herramenn eru í liði hans, og
fjöldinn fylgist með í afarstórum og mörgum fylkingum, sem hver
um sig hefir sinn ákveðna herforingja. Hinir miklu flokkar fara af
[365]
stað með her-stjórnarlegri nákvæmni, og þeir fara yfir hið brotna
og ójafna yfirborð jarðarinnar, alla leið að borg Guðs. Sam-kvæmt
skipun Jesú eru hlið borgarinnar læst og hersveit-ir Djöfulsins sjást
umhverfis borgina og búast til atlögu.
Nú birtist Kristur enn þá óvinum sínum; langt fyrir ofan borgina
upphafinn á grundvelli glóanda gulls, sést hásæti. Í þessu hásæti
situr sonur Guðs og umhverfis hann eru þegnarnir í ríki hans. Krafti
og dýrð Krists getur engin tunga lýst né penni málað. Dýrð hins
eilífa föður ljómar umhverfis son hans. Birtan af nálægð hans fyllir
borg Drottins og streymir út frá borgarhliðunum og flæðir út um alla
jörðina með dýrð sinni.
Næstir hásætinu eru þeir, sem áður fyr voru ákaf-astir að berjast
fyrir málefni Djöfulsins, en voru hrifnir svo sem mitt úr eldinum,
og hafa síðan fylgt frelsara sínum með djúpri og einlægri ástundun.
Næstir eru þeir, sem lifðu fullkomnu kristilegu lífi mitt í freistingun-
um og trúleysinu; þeir sem virtu Guðs lög, þegar hinn kristni heimur
dæmdi þau markleysu, og svo miljónirnar frá öll-um öldum, sem