126
Deilan mikla
Þessir menn voru nefndir hreintrúaðir menn (Puritans); höfðu
þeir gengið í heilagt safnaðar samband, sem frjálst fólk frelsara síns,
til þess að breyta í öllu eftir líferni hans og lífa saman eftir því
sem hann opinberaði þeim að rétt væri. Þetta fólk var gagntekið af
sönnum siðabóta-anda, sem er grundvöllur mótmælendatrúarinn-ar.
Með þetta takmark í huga lagði þetta fólk af stað frá Hollandi, til
þess að leita sér heimkynnis í Norður Ameríku — hinum nýja heimi.
Þegar tíðindin bárust til ýmsra landa í Evrópu um land, þar sem
öllum væri frjálst að njóta ávaxta af eigin verkum og hlýða röddum
eigin samvizku, þá streymdu þúsundir manna til hins nýja heims.
Nýlendum fjölgaði óðum. Massachusette samþykti sérstök lög, þar
sem allir voru boðnir og velkomnir og öllum var veitt aðstoð af
al-manna fé, ef þeir voru kristnir menn, frá hvaða landi sem þeir
komu til þess að flýja ófrelsi, stríð eða hungurdauða eða ofsóknir
andstæðinga sinna. Þannig voru hinir of-sóttu og undirokuðu með
lögum boðnir velkomnir gestir ríkisins.
Innan tuttugu ára frá því að hinir fyrstu innflytj-endur lentu
við Plymouth, höfðu þúsundir pílagríma sezt að í Nýja Englandi.
Af þessum útlögum var lagður grundvöllurinn að borgaralegu og
trúarlegu frelsi, sem verið hefir ávalt síðan hin mesta frægð hinnar
amerísku þjóðar.
[174]
Martyn 5. bindi, 17. bls.