Jörðin verður að auðn
Þegar Kristur kemur munu hinir óguðlegu verða af-máðir af
allri jörðinni—eyðilagðir af anda munns hans og að engu gerðir af
ljómanum frá ásjónu hans. Kristur fer með fólk sitt til borgar Guðs og
jörðin verður að öllu leyti mannlaus: “Sjá, Drottinn tæmir jörðina og
eyðir hana, hann umhverfir ásjónu hennar og tvístrar íbúum hennar”.
“
Jörðin skal verða altæmd og gjörasmlega rænd, því að Drottinn
hefir talað þetta”. “pví að þeir hafa brotið lögin, brjálað boðorðunum
og rofið sáttmálann eilífa”. “Þess vegna eyðir bölvun jörðinni og
íbúar hennar gjalda; þess vegna farast íbúar jarðarinnar af hita”
Öll jörðin er eins og gróðurlaus eyðimörk. Rústirnar af borgum
og bæjum sem jarðskjálftar hafa eyðilagt; upprætt tré, brotnir klettar
sem sjórinn hefir kastað upp eða sem slitnað hafa úr sjálfri jörðinni,
alt þetta er dreift um yfirborð jarðarinnar, en stórar gjár sjást þar sem
fjöllin hafa verið hryst af grunni sínum.
Nú skeður það, sem fyrirmyndað var með hinni síð-ustu helgu
athöfn á degi friðþægingarinnar. Þegar em-bættisverkin inni í hinu
allra helgasta voru fullkomnuð og syndir Ísraelslýðs höfðu verið
afmáðar frá helgidóm-inum með blóðfórninni, þá var komið með
hafurinn lif-andi fram fyrir Drottinn og í augsýn safnaðarins játaði
presturinn uppi yfir honum “öll afbrot Ísraelslýðs og all-ar misgjörðir
þeirra, í hverju sem þeir kunna að hafa syndgað, og hann skal leggja
þær á höfuð hafursins”
Sömuleiðis þegar friðþægingarverkinu í
hinum himneska helgidómi er lokið, verða syndir Guðs fólks lagðar
á Djöfulinn í augsýn Guðs og hinna heilögu engla og fjölda hinna
[359]
endurleystu. Hann verður dæmdur sekur um alt ílt, sem hann hefir
ákært þá um. Og eins og hafrinum var slept út í óbygðir, þannig
verður Djöfullinn útlægur gjörður og rekinn á hina óbygðu jörð og
mannlausu eyði-merkur.
Johannes segir fyrir útlegð Djöfulsins og óskapnaðar og eyði-
merkur ásigkomulagið, sem ríkja skuli á jörðinni. Og hann lýsir
Jes. 24 : 3, 5, 6.
3.
Móse 16 : 21.
274