Page 286 - Deilan mikla (1911)

282
Deilan mikla
þátttöku í syndinni; sú blessun, sem þeim hefir snúist í bölvun sjálfra
þeirra vegna; sendiboðar Guðs, sem þeir hafa fyrirlitið; aðvaranir
þær sem þeir hafa hafnað; miskunnsemin sem þeir með þrákelkni
sinni hrundu frá sér, iðrunarlaust hjarta — alt þetta birtist þeim nú
sem væri það ritað glóandi eldstöfum.
Og uppi yfir hásætinu, þar sem Jesús situr, birtast nú sem í fjar-
sýn myndir af freistingu og falli Adams og spor þau, sem koma
hvert á eftir öðru í endurlausnar-verkinu. Íbúar jarðarinnar sjá hina
lítilmótlegu fæðingu frelsarans, æskulíf hans, skírn hans í Jordan
og freisting-una á eyðimörkinni, hin opinberu líknarstörf hans, sem
svo mikla blessun höfðu í för með sér, grasgarðinn, svikin, réttar-
haldið og fordæminguna, krossfestinguna — alt svo greinilega, sem
það væri að gerast fyrir augum þeirra. Djöfullinn með englum sín-
um og þegnum hefir ekkert afl til þess að snúa þeim frá myndum
þeim er sýna þeirra eigin verk. Hver hluttakandi í þessari hræðilegu
[367]
sýningu minnist þess hlutverks, sem hann framkvæmdi: Heródes,
Pílatus, prestarnir og stjórnendur reyna árangurslaust að fela sig fyrir
hinum heilaga dýrðarkrafti sem skín af ásjónu Guðs, en hinir frels-
uðu kasta kórónum sínum fyrir fætur frelsarans og hrópa segjandi:
Hann dó fyrir oss!” Á meðal hins mikla fjölda eru postular Krists,
hinn hugumprúði Páll postuli, Pétur hinn ákafi, Johannes sá er Jesús
elskaði, og hinir trúföstu bræður þeirra; með þeim er mikill fjöldi
píslarvotta, en fyrir utan eru þeir sem ofsóttu þá, settu þá í fangelsi
og líflétu þá.
Þar eru páfaprestar og hinir háu embættismenn kirkjunnar, sem
þóttust vera fulltrúar Krists, en notuðu þó píslarfæri, fangelsi og
brennur til þess að bæla niður samvizkufrelsi þjóna hans. Það er nú
um seinan fyrir þá að skilja þann sannleika að Kristur telur sér hið
sama gert, sem gert er hinum líðandi þjónum hans, og þeir finna nú
kraft hans eigin orða þar sem hann segir: “Svo framarlega sem þér
hafið gert þetta einum mínum minstu bræðrum, þá hafið þér og gert
mér það”
Allur hinn spilti heimur stendur ákærður frammi fyrir dómstóli
Drottins fyrir hin svörtustu svik gegn stjórn himnanna. Þeir seku
hafa engan er tali máli þeirra; þeir hafa enga afsökun og hegning
eilífs dauða er sá dómur, sem upp er kveðinn yfir þeim.
Matt. 25 : 40.