Page 75 - Deilan mikla (1911)

Lúter yfirgefur Rómversku kirkjuna
71
páfanna. Þessi orð höfðu í sér fólgin frumatriði siðbótarinnar; hjarta
hennar og sál.
Lúter sá hvílík hætta var í því fólgin að manna-setningar yrðu
teknar fram yfir orð hins almáttuga. Hann réðist vægðarlaust á grufl
og guðleysi hinna skóla-lærðu manna, og barðist gegn þeim heim-
spekingum og guðfræðingum, sem árum saman höfðu haft vald yfir
fólkinu og leitt það í blindni. Hann fordæmdi slíka lær-dóma ekki
einungis sem gagnslausa, heldur einnig sem skaðlega, og reyndi
að snúa huga áheyrenda sinna frá blekkingum heimspekinganna
og guðfræðinganna að hinum eilífa sannleika, sem boðaður var af
spámönnun-um og postulunum.
Dýrmætur var sá boðskapur er Lúter flutti hinum sannleiksþyrsta
mannfjölda, sem flyktist umhverfis hann; aldrei fyr höfðu þeir heyrt
[104]
slíkar kenningar sem þessar. Gleðiboðskapur um elskandi frelsara;
fullvissa um frið og fyrirgefning fyrir hans frelsandi blóð gladdi
hjörtu þeirra og fylti þá ódauðlegri von. Í Wittenberg var lifnað ljós,
sem dreifa skyldi geislum sínum til endimarka jarð-arinnar og átti
að verða bjartara og bjartara eftir því sem tímar liðu fram.
En ljós og myrkur eiga ekki saman. Milli sannleika og villu er
mikið djúp staðfest. Að vernda annað og mæla með því er sama sem
að ráðast á hitt og eyðileggja það. Sjálfur frelsari vor sagði: “Eg er
ekki kominn til að flytja frið, heldur sverð”.
Og fáum árum eftir
byrjun siðabótarinnar sagði Lúter: “Guð stjórnar mér ekki; hann
hryndir mér áfram, hann ber mig áfram til starfa; eg er ekki minn
eiginn herra. Eg þrái að lifa friðsömu lífi; en mér er hrundið út í
uppreistir og óeirðir”.
Hann var nú rétt um það leyti að hefja það
stríð, sem hann átti í vændum.
Rómverska kirkjan hafði gert Guðs orð að verzlun-arvöru. Borð
peningavíxlaranna voru reist upp
við hlið altarisins og loftið var
þrungið verzlunarhljómum þeirra sem keyptu og seldu. Undir því yf-
irskyni að verið væri að safna fé til St. Péturs kirkjunnar í Rómaborg
voru syndsamlegar athafnir blátt áfram boðnar til sölu opinberlega
af yfirvöldum páfans. Fyrir þá peninga sem fengust fyrir glæpi átti
að byggja hús drottins honum til dýrðar!
Matt. 10: 34.
D’Aubigné, 5. bók, 2. kap.
Matt. 21: 12.